Bloggsvæði Dússí
27.11.2006 15:22:25 / Kriss

Átak

HÆ!!!


Það er orðið langt síðan ég skrifaði seinast, en það hefur bara verið svo margt annað að gera undan farið.

Þann 15. sl. hafði ég misst 1 kg. yfir vikuna:lol:En vikuna þar á eftir stóð ég í stað:|En ég er orðin svo vön því að standa í stað öðruhvoru að ég er alveg sátt við það. Svo er bara að sjá hvað vigtin segir núna á fimmtudaginn kemur8)Frænka mín hefur verið hjá mér í rúma viku og núna um helgina datt ég alveg í nammið með henni.:$

Það kemur bara í ljós og þetta er eiginlega fyrsta alvarlega nammi-fallið mitt:whut:

En nú er bara að halda áfram á beinu brautinni og borða rétt.:)

Kveðja til ykkar allra !!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 00:22:55 / Kriss

Átak

HÆ!!!

Ég hef ekki skrifað lengi, fékk alveg rosalega tannpínu, og tönnin var tekin úr mér, en ég hef haft mikla verki í 10 daga þar sem hún var.:^)en held að þetta sé að minnka.

Ég hef staðið í stað seinasta 1/2 mánuðinn, en ég hef ekki getað borðað mikið, svo sennilega er það líka eitthvað í sambandi við það. En samt sem áður virðist sem ég standi í stað einhvern tíma og fari svo niður á við í 2- 3 vikur og svo aftur bið í 2 - 3 vikur.:S

Það eina sem gildir er að vera þolinmóður:)

Gangi ykkur öllum vel !!!!

KVEÐJA !!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 12:37:03 / Kriss

Átak

Hæ !!!

Ég léttist um 0.4 kg. í síðustu viku, ég er bara nokkuð ánægð:)

En það koma enn þá yfir mig yfirþyrmandi langanir stundum á kvöldin í nammi:^)En ég passa mig á því að eiga ekkert nammi ekki einu sinni kex, þannig að frosnu jarðarberin mín koma þá til hjálpar:)

Ég er ekki enn þá farin að skoða hvernig ykkur gengur, en ætla að gera það í dag eða á morgun.

Gangi ykkur öllum vel !!!

Góða helgi !!!

KVEÐJA TIL YKKAR ALLRA !!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 11:34:18 / Kriss

Átak

Hæ allar saman !!!!!

Þetta er erfitt en gaman, þrátt fyrir að standa stundum í stað.:)Ég fór niður um 400 gr. núna síðustu viku:D

Ég er bara mjög ánægð á meðan ég fer ekki upp á við.

Þakka ykkur fyrir commentin þau virka svo sannarlega:)

Gangi ykkur öllum vel !!!!!

Eigið góða helgi !!!!!

Fer á blogg rúntinn um helgina og lít inn til ykkar, hlakka til að sjá hvað þið hafið að segja:)

Kveðja !!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.10.2006 11:41:50 / Kriss

Átak

Hæ!!!

Ég á í einhverjum vandræðum með tölvuna mína, en er að bíða eftir að hann sonur minn megi vera að því að líta á hana fyrir mig.

Ég stóð í stað þegar ég vigtaði mig á fimmtudaginn var:|En þetta virðist bara ganga svona fyrir sig hjá mér.

Mér finnst þið hinar ná svo miklu meiri árangri á styttri tíma en ég, en meðan ég fer ekki uppá við þá er ég nokkuð ánægð:)

Gangi ykkur öllum vel !!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 01:41:31 / Kriss

Átak

Hæ !!!

Ég er sein fyrir núna með að segja ykkur frá léttingi í síðustu viku, en ég var búin að skrifa heilmikið s.l. föstudag, en það datt allt út og það er búið að vera erfitt að komast inná bloggið í kvöld.

Ég var mjög ánægð þegar ég vigtaði mig síðastliðinn fimmtudat, það voru farin 1 kg.:) Ég var búin að standa svo lengi í stað að ég varð himinlifandi yfir þessu:lol: Ég hefði sennilega verið búin að gefast upp ef þið væruð ekki til staðar til að hvetja mig áfram og gefa mér alveg ómetanlegt pepp:)

Það er bara verst hvað ég er löt að prufa nýjar uppskriftir, ef það er mikið í þeim, því ég elda bara handa mér einni. En ég nota margar grunnuppskr. og hef svo minna fyrir því sem á að vera með, en mér finnst það samt reglulega góður matur:)

Það sem mér finnst best við þetta allt saman er að ég verð meðvituð hvað ég læt oní mig og hvað mikið. Þetta gengur út á breyttar matarvenjur, og það tel ég vera af hinu góða:D

En ég verð að viðurkenna að ég fæ enn þá nammi löngun yfir mig:(En þá fæ ég mér ber sem ég á alltaf til í frystinum, það dugar mér:)

Gangi ykkur öllum vel !!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 00:18:07 / Kriss

Átak

Hæ!

Jæja loksins fór ég niður um 0.6kg. Það er kanski ekki mikið, en samt aukakílóin sniglast í burtu.:lol:

Ég hef þurft að fjárfesta í fötum tveim no. minni, en ég notaði þegar ég byrjaði, var svo heppin að geta náð mér í þau á útsölu. Vonast til að minnka að minnsta kosti um eitt no. fyrir jólin;)

Eigið þið góða helgi !!!!

Og gangi ykkur vel !!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 16:12:48 / Kriss

Ekki hætt!

Hæ Hæ!

Nei, Nei, ég er ekki hætt, hvorki að grenna mig eða blogga.

Það er orðið lalngt síðan ég skrifaði seinast, en það eru búnar að vera þvílíkir tækniörðuleikar hér hjá mér eiginlega allan september.

Ég ætla að byrja á því að segja ykkur að ég hef staðið í stað, en ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því, því ég hef ekki verið að svindla:SRæddi það við lækninn minn og sagði hann mér að það væri eðlilegt að standa í stað í langtíma megrun, vona að hann hafi rétt fyrir sér í því. Því ég hef ekki hreyft mig eins mikið og s.l. mánuð síðan ég byrjaði í átakinu:)

Ég þurfti að fara með heimilissímann í viðgerð. Fékk lánaðan annan síma á meðan, reyndist hann vera bilaður, fékk ég annan síma, en gat ekki haft netið og símann tengt bæði í einu. Ég veit þið trúið því ekki, en einn bilaður sími kostaði mig sjö ferðir niður í símabúð, ég var að verða vitlaus:^)´Jæja ég þurfti að fá mér nýjan síma, og auðvitað passaði símasnúran ekki við netsíuna  hjá mér, en það var búin til snúra fyrir mig hjá símanum, en hún virkaði ekki:(Að lokum fór ég í verzlun BT og fékk þar almennilega snúru og loksins er allt orðið vel tengt hjá mér:lol:En það er ótrúlegt að maður þurfi nú til dags að lenda í svona vitleysu, og yfirleitt þurfti ég að bíða lágmark í eina klst. eftir afgreiðslu hjá símanum:(

Ég ætla að fara núna og kíkja á hvað þið hafið að segju og sjá hvernig ykkur gengur.

Gangi ykkur öllum vel !!!!

Góða helgi !!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 15:11:42 / Kriss

Átaj

HÆ!!!

Oh, nú stóð ég í stað þessa vikuna, en ég er orðin svo vön því. Það er eins og ég standi í stað stundaum í 2-3 vikur í einu, og svo fer ég aðeins niður á við.;)

Ég ætla ekki að kvarta á meðan ég fer ekki uppá við.

En jafnframt því að vera í sjúkraþjálfun, þá fer ég í tækjasalinn þar. Það finnst mér alveg frábært:)

Ég er alveg drullu þreytt og með verki eftir þá daga, en líður mikið betur daginn eftir:DÉg þarf sko alveg á þessu að halda.

Góða helgi!!!

Gangi ykkur öllum vel !!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 15:56:02 / Kriss

Átak

Hæ!

Það fóru af mér 0.6kg. í síðustu viku, Viktaði mig s.l. fimmtudag.:)

Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér undanfarið og svo líka leti í mér að ég hef ekki sest niður til að skrifa fyrr en nú:|

Ég er að vona að þetta haldi áfram að fara af mér svona smásaman.:) Það er svo pirrandi að standa í stað:S

Þakka ykkur fyrir peppið, það bjargar manni:)

Gangi ykkur vel!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 17:54:52 / Kriss

Átak

Hæ alltof langt síðan ég skrifaði seinast?

En ég losnaði við 0.8kg. síðan síðast. Og er bara ánægð með það:)

Í gær féll ég í algjört svindl, réði ekki við mig:cry: Fékk mér súkkul.köku og ís ég held tvisvar í gær.

En í dag er ég ákveðin, veit bara ekki hvað kom yfir mig í gær.8) Það er langt síðan ég hef sótt í svona sætindi:$

Nú er bara að halda sínu venjulega striki, ekki satt?

Gangi ykkur öllum vel!!!!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 18:27:22 / Kriss

Átak

Hæ loksins, sest ég niður til að skrifa. Ég hef léttst um 0.6kg.:) síðan í síðustu viku en ég hafði staðið í stað síðastliðnar 3 vikur.

Mér finnst þetta svo mikið einfaldara þegar ég elda bara ofan í mig eina.

En mér finnst þetta samt ganga ansi hægt hjá mér8|En niður skal ég fara þótt það taki sinn tíma.;)

En einhvern veginn er þetta léttara á veturnar, hvað segið þið hinar um það:)

Gangi ykkur öllum vel og góða helgi !!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 19:45:15 / Kriss

Átak úff úff

Hæ allar!!!!

Ég stóð aftur í stað í morgun:(

En nú er ég orðin aftur ein og get byrjað á mínu fæði8)

Það gengur ekki að vera með barnshafandi konu á sér fæði, sérstaklega þegar listin er ekki mikil og oft kastað upp. En mér finnst bara gott hjá mér að hafa ekki bætt neinu á mig;)

Ég er líka byrjuð í strangri sjúkraþjálfun, svo eitthvað hlýtur að fara að fara í viðbót. Ég stefni á, að sleppa göngugrindinni:)

Gangi ykkur öllum vel !!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 01:49:04 / Kriss

Átak

Hæ !!!!

Fór á vigtina í gærmorgun og hafði ég staðið í stað síðan síðast:S

Þetta gengur ekki alveg nógu vel hjá mér þessa dagana. Ég er enn þá með gesti og get ekki eldað alveg eins og fyrir mig eina. En ég er bara ánægð meðan ég þyngist ekki.

Fer að vera ein upp úr miðri næstu viku.

Gangi ykkur öllum vel og góða helgi!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 21:50:02 / Kriss

Átak

HÆ!!!!

Ég var ánægð þegar ég fór á vigtina í gær, eins og ég geri á hverjum fimmtudagsmorgni, það voru farin 0,8 kg.:lol:

En ég þarf að fara að taka mig í gegn hvað varðar reykingar, verð að fara að hætta því8)En er hrædd um að þá fari ég að þyngjast aftur. Eigið þið einhver góð ráð við því:(

En mikið er annars gaman þegar veðrið er eins gott og það var í dag:lol:

Óska ykkur öllum góðrar helgar:)

Hafið það gott !!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7